… og Sjálfstæðisflokkurinn landaði 7 … veit ekki hvort ég var bara syfjaður um miðnætti í gærkvöldi þegar VilliV mætti til kosningavöku sinnar, en mér fannst örlítill hroki og harka gæjast undan sauðagærunni(?). Getur það verið að flett verði ofan af plottinu seinna í dag? Annars voru líka áhugaverð viðbrögð Stefáns Jóns þegar hann var spurður út í leiðtogahæfni Dags í þessari kosningabaráttu. Getur verið að uppgjör innan SF fylgi í kjölfarið? Annars var fínt að loksins sé verið að skipta um stjórn í borginni og ég held að nú komi kraftur í kvikindið!